Viltu fá aðstoð við fræðslumálin?

Nú eru margir rekstraraðilar komnir aftur til vinnu eftir sumarfrí og farnir að huga að fræðslu fyrir sitt starfsfólk. Einhver fyrirtæki hafa að skipa mannauðs- eða fræðslustjóra sem er sérstaklega menntaður í þeim fræðum en í flestum tilfellum er ekki svo. Þá er gott að geta leitað sér aðstoðar, fyrirtækinu að kostnaðarlausu.  

Viltu aðstoð ?

Hér hjá Starfsafli er hægt að fá aðstoð við eftirfarandi:

  • skoða mögulegar leiðir í fræðslu starfsfólks
  • kynningu á möguleikum eigin fræðslu,stafrænni fræðslu og staðbundinni fræðslu
  • fá upplýsingar um námskeið og fræðsluaðila
  • skipuleggja eitt námskeið eða jafnvel setja upp einfalda fræðsluáætlun
  • fá upplýsingar um styrki (hvað er styrkhæft og möguleg endurgreiðsla)
  • fá fræðslu, ráðgjöf og stuðning

Þessi þjónusta er gjaldfrjáls öllum þeim sem eru með starfsfólk í þeim félögum sem standa að Starfsafli* 

Það er einfalt mál að að hafa samband. Við mælum með því að bókaður sé tími með því að senda tölvupóst á starfsafl@starfsafl.is og við finnum tíma fyrir spjall, annaðhvort símleiðis í síma 5107550  eða komum á fundi á skrifstofu Starfsafls. Einnig getum við bent á ráðgjafa sem starfa með sjóðnum undir merkjum Fræðslustjóra að láni en sú þjónusta er jafnframt gjaldfrjáls.

 

Verkfæri og greinar á vef Starfsafls.

Á vef Starfsafls má finna ýmsar greinar og annað efni sem getur gagnast þeim sem vilja skoða sín fræðslu- og starfsþróunarmál.  Til að mynda er þar að finna handbók á rafrænu formi um leiðir að árangursríkri fræðslu og þjálfun. I handbókinni er að finna kafla sem taka meðal annars á eftirfarandi:

  • Ferli fræðsluáætlunar
  • Stefnumiðuð þróun mannauðs
  • Þarfagreining fræðslu og þjálfunar
  • Samstilling aðferða til árangurs
  • Væntingaskil

Handbókin er hagnýtt verkfæri og getur auðveldað mörgum fyrstu skrefin þegar kemur að gerð fræðsluáætlunar.  Hér má hafa í huga að handbókin er leiðbeinandi og fyrir þá sem eru með minni rekstrareiningar er vel hægt að fara einfaldari og skemmri leiðir.

Á vefsíðu Starfsafls má síðan finna einfalt sniðmát fyrir fræðsluáætlun auk þess sem þar er að finna sýnishorn af útfylltri fræðsluáætlun. Sniðmátið er hægt að aðlaga að þörfum, stækka, minnka eða breyta á hvern þann hátt sem hentar rekstrarforminu, fjölbreytni starfa og fjölda starfsmanna. 

Á vefsíðu Starfsafls má lesa hvaða þættir það eru sem eru styrkhæfir en fyrirtæki sem greiða af starfsfólki til Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar, geta sótt um styrki vegna námskeiðahalds til Starfsafls.

Starfsafl styrkir að öllu jöfnu fyrirtæki um 75% af kostnaði fyrir sína félagsmenn og geta fyrirtæki sótt um allt að þrjár milljónir króna á ári.  Skilyrði er að sá starfsmaður (eða starfsmenn) sem sótt er um styrk vegna hafi verið starfandi hjá fyrirtækinu þegar námskeið fór fram, nafn hans og kennitala komi fram á reikningi (eða fylgiskjali) þar sem fyrirtækið er tilgreindur greiðandi og iðgjöld hafi borist viðkomandi stéttafélagi.  Athugið að út árið 2021 er endurgreiðslan 90% af kostnaði.

Greinastúfar á vef Starfsafls tengdir fræðslu og gætu gagnast:

Þá viljum við benda á fræðslutorgi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar  en þar má finna ýmsislegt ganglegt, þar með talið nokkur góð ráð fyrir stjórnendur um stafræna fræðslu.

Hér má lesa nánar  8 góð ráð fyrir stjórnendur um stafræna fræðslu.

Myndin með fréttinni er fengin hér

* Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar, VSFK eða Hlífar, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna