Hvalaskoðun Reykjavíkur styrkt

Greiddur hefur verið styrkur til Hvalaskoðunar Reykjavíkur að upphæð kr. 766.875,- og nær sá styrkur til 35 félagsmanna.  Styrkurinn er vegna námskeiða sem voru á vegum Slysavarnaskóla sjómanna og tók til mannauðasstjórnunar skipa, hóp og neyðarstjórnunar og öryggisfræðslu, svo dæmi séu tekin.
 
Að jafnaði styrkir Starfsafl 75% af kostnaði við fræðsluaðila og greiðir aðeins fyrir starfsmenn sem greitt er af til sjóðsins, þ.e. eru félagar í  Eflingu‐ stéttarfélagi, Verkalýðsfélaginu Hlíf og Verkalýðs‐ og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis.  Hámark samanlagðra styrkja til fyrirtækis er 3 milljónir kr. á ári, sbr. reglur þar um. 
 
Frekari upplýsingar um fyrirtækjastyrki Starfsafls má sjá hér