Menntamorgnar atvinnulífsins

Starfsafl minnir á menntamorgna atinnulífsins en fyrsti fundur vetrarins verður fimmtudaginn 3. október næskomandi.   Fundurinn hefst kl. 8.15 og boðið verður uppá morgunkaffi en áætlað er að fundinum ljúki kl. 9.00.

Á menntamorgnum í Húsi atvinnulífsins skapast vettvangur fyrir gagnlegar umræður um leiðir til rafrænnar fræðslu og áskoranir sem henni fylgja. Morgunfundirnir er fyrir alla sem hafa áhuga á málefninu og vilja taka þátt í þeim breytingum sem þar eru að eiga sér stað.

Samhliða fjórðu iðnbyltingunni eykst þörfin fyrir stöðuga fræðslu og endurmenntun starfsfólks. Hröð tækniþróun eykur möguleikana á sveigjanlegum, skilvirkum og hagkvæmum valkostum þegar kemur að þessari fræðslu þar sem rafrænt námsumhverfi er í forgrunni. Með rafrænu námsumhverfi skapast lausnir og tækifæri fyrir öll fyrirtæki en ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki sem og fyrirtæki á landsbyggðinni.

Dagskrá

  • Rafræn fræðsla, hugtök og hugmyndir. Árný Elíasdóttir sérfræðingur hjá Attentus.
  • Tækifæri í rafrænu og stafrænu umhverfi. Berglind Ragnarsdóttir sérfræðingur á verkefnastofu um stafrænt Ísland.
  • Innleiðing á rafrænni fræðslu í Arion banka. Hörður Bjarkason, sérfræðingur í fræðslumálum á viðskiptabankasviði Arion banka.
  • Áskoranir og áherslur í rafrænni fræðslu Origo. Eva Demireva sérfræðingur hjá Origo.

Fundarstjóri Davíð Þorláksson fostöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.

Skráning fer fram á vef SA.