N1 semur um styrki til eigin fræðslu

Starfsafl og N1 undirrituðu samning í dag um styrki sjóðsins til eigin fræðslu fyrirtækisins.  N1 heldur úti fjölbreyttu fræðslustarfi, bæði með aðkeyptum námskeiðum og eigin leiðbeinendum. Í mörgum tilvikum er besta þekkingin innanhúss hjá fyrirtækjum og styrkir Starfsafls til eigin fræðslu er vel metinn stuðningur við það starf.

Björg Ársælsdóttir er nýráðinn fræðslustjóri N1 og við bjóðum hana velkomna til starfa. Starfsafl og N1 hafa átt langt og gott samstarf og var N1 eitt af fyrstu fyrirtækjunum til að fá Fræðslustjóra að láni frá sjóðnum árið 2009 þegar það verkefni var að hefjast í þeirri mynd sem við þekkjum það núna.

Nánari upplýsingar um styrki Starfsafls til eigin fræðslu fyrirtækja eru hér og um Fræðslustjóra að láni hér.

N1_undirskr_eigin_fraedsla_2015

Frá undirskrift samninga um styrki til eigin fræðslu N1 í aðalstöðvum fyrirtækisins í dag, Sveinn Aðalsteinsson, framkv.stj. Starfsafls og Björg Ársælsdóttir, fræðslustjóri N1.