Menntadagur atvinnulífsins 2017

Menntadagur atvinnulífsins 2017 verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar n.k.  á Hilton Reykjavík Nordica og ber yfirskriftina “Nýjasta máltækni og vísindi”. Þetta er í fjórða sinn sem menntadagur atvinnulífsins er haldinn en hann er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. 
 
Einnig verður boðið upp á kynningar fræðslusjóða og fræðsluaðila á sérstöku menntatorgi  og Starfsafl verður að sjálfsögðu þar eins og fyrri ár og tekur vel á móti gestum.
 
DAGSKRÁ 8:30 – 10:15
 
Íslensk máltækni og atvinnulífið
Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins.
 
Ávarp menntamálaráðherra
Kristján Þór Júlíusson.
 
Íslenska í stafrænum heimi
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Háskóla Íslands.
 
Áhrif máltækni á rekstur og þjónustu fyrirtækja
Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Símanum.
 
Á íslensku má alltaf finna svar
Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og skáld.
 
Að tala íslensku við tölvur
Jón Guðnason, lektor við Háskólann í Reykjavík.
 
Málið og atvinnulífið
Guðfinna S. Bjarnadóttir
 
Menntaverðlaun atvinnulífsins 2017
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir Menntaverðlaun atvinnulífsins.
Menntafyrirtæki ársins 2017 verður valið ásamt Menntasprota ársins.
 
Að lokinni sameiginlegri dagskrá og kaffihléi verður boðið upp á þrjár áhugaverðar málstofur.
 
MÁLSTOFUR KL. 10.45-12.15
 
FAGHÁSKÓLINN
•Jakobína Hólmfríður Árnadóttir, ráðgjafi hjá Capacent.
•Runólfur Ágústsson, ráðgjafi mennta og menningarmálaráðuneytis.
•Sólveig Lilja Snæbjörnsdóttir, fagstjóri VR.
•Pallborðsumræður. Auk frummælenda taka þátt Jón B. Stefánsson skólameistari Tækniskólans, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
•Fundarstjóri er Pétur Reimarsson forstöðumaður hjá SA
 
TÆKNIÞRÓUN OG BREYTTAR ÁHERSLUR Í MENNTAMÁLUM
•Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, námssálfræðingur hjá Tröppu.
•Ingvi Hrannar Ómarsson, Grunnskólum Skagafjarðar.
•Ingvi Ásgeirsson og Trausti Björn Ríkharðsson hjá BL.
•Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
•Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
•Pallborðsumræður. Auk frummælenda taka þátt Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Haukur Harðarson, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
•Fundarstjóri er Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.
 
HÆFNI, FRÆÐSLA OG ARÐSEMI Í FERÐAÞJÓNUSTU
•Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
•David Allen, framkvæmdastjóri Fólks í fyrirrúmi (e. People 1st), Skotlandi.
•María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
•Pallborðsumræður þar sem þátt taka Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála, Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna -og gæðasviðs Icelandair hótela og Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landsnámssetursins í Borgarnesi.
•Fundarstjóri er Óskar Finnsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandshótela.
 
Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku, sjá hér