KFC fær Fræðslustjóra að láni

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við KFC á Íslandi en saga fyrirtækisins hérlendis nær til ársins 1980. Fyrsti KFC-staðurinn á Íslandi var opnaður í Hafnarfirði í október það ár þannig að saga þess nær nú yfir 30 ár. Staðirnir eru alls 8 talsins; í Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjavík, Selfossi, Reykjanesbæ og Mosfellsbæ. Í eigu sömu aðila er Pizza Hut og var sá hluti rekstursins jafnframt tekinn með í verkefnið.

Fjöldi starfsmanna er 326 talsins og þeir sjóðir sem koma að verkefninu eru Starfsafl og Landsmennt 

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Sverrir Hjálmarsson hjá Vexti og ráðgjöf mun stýra verkefninu og vera í hlutverki fræðslustjórans.

Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550

Myndin er fengin að láni af fésbókarsíðu KFC.