Kaffispjall um fræðslu- og mannauðsmál

Það er komið að fyrsta kaffispjallinu hjá okkur hér í Starfsafli, en vegna anna hefur því ekki verið komið við fyrr. 

Fyrir þá sem ekki þekkja þá felur kaffispjallið það í sér að við bjóðum þeim sem hafa með mannauðs- og fræðslumál að gera, til okkar í morgunkaffi. Þannig getum við hlustað, tekið samtalið, lært og leitað leiða til að mæta þörfum fyrirtækjanna og starfsmanna þeirra. Þá er ekki síður ávinningur fyrir okkar gesti að koma hingað á skrifstofu Starfsafls, kynnast sjóðnum betur, heyra hvað aðrir eru að gera í sínum mannauðs- og fræðslumálum og vonandi mynda gagnlegar tengingar.

Um er að ræða fámenna morgunfundi, hámark 6 gesti, enga dagskrá en skemmtilegar umræður ef vel tekst til. Við hvetjum sérstaklega þá sem aldrei hafa komið til að kíkja á okkur. 

Næsti kaffispjall er þriðjudaginn 6. nóvember nk. kl. 9:30 og skráning er á netfangið lisbet@starfsafl.is  Athugið, að vegna takmörkunar á þátttöku er skráning nauðsynleg. 

Vertu velkomin/n