Við skellum í kaffispjall 12. febrúar nk.

Við ætlum að skella í kaffispjall þriðjudaginn 12. febrúar nk.

Fyrir þá sem ekki þekkja þá felur kaffispjallið það í sér að við bjóðum þeim sem hafa með mannauðs- og fræðslumál að gera, til okkar í morgunkaffi. Þannig getum við hlustað, tekið samtalið, lært og leitað leiða til að mæta þörfum fyrirtækjanna og starfsmanna þeirra. Þá er ekki síður ávinningur fyrir okkar gesti að koma hingað á skrifstofu Starfsafls, kynnast sjóðnum betur, heyra hvað aðrir eru að gera í sínum mannauðs- og fræðslumálum og vonandi mynda gagnlegar tengingar. Um er að ræða fámenna morgunfundi, hámark 6 – 8 gesti, enga dagskrá en skemmtilegar umræður ef vel tekst til. Við hvetjum sérstaklega þá sem aldrei hafa komið til að kíkja á okkur.

Næsti kaffispjall verður sem fyrr segir þriðjudaginn 12. febrúar desember nk. kl. 10:00 og skráning er á netfangið lisbet@starfsafl.is Athugið, að vegna takmörkunar á þátttöku er skráning nauðsynleg.

Vertu velkomin/n