Íslandshótel fær Fræðslustjóra að láni

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við Íslandshótel. Íslandshótel er umsvifamikið fyrirtæki, með 17 hótel á Íslandi; Grand Hótel Reykjavík, Hótel Reykjavík Centrum auk Fosshótelanna sem staðsett eru hringinn í kringum landið. Fjöldi starfsfólks er um eitt þúsund.

Starfsafl, Landsmennt, SVS og Iðan styrkja verkefnið að fullu.

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Ragnar Matthíasson hjá RM ráðgjöf mun stýra verkefninu og vera í hlutverki fræðslustjórans en hann hefur stýrt fjölda fræðslustjóraverkefna fyrir sjóðina og gert það vel.

Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550