Fjölmenni á fundi Áttarinnar

Í morgun var haldinn morgunverðarfundur í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fundurinn er hluti af fundaröðinni Menntun og mannauður 2015-2016. Á fundinum var Áttin kynnt en hún er ný vefgátt sem greiðir leið fyrirtækja að umsóknum að starfsmenntassjóðum og fræðslustofnunum. Áttin er sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launafólks á almennum vinnumarkaði.  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir frá SA og Sveinn Aðalsteinsson, verkefnisstjóri Áttarinnar voru með framsögu á fundinum.

Fyrirtæki þar sem starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og greitt er af í mismunandi stéttarfélög, hafa hingað til þurft að sækja til margra sjóða og fræðslustofnana um styrki. Þau eiga héðan í frá að geta sótt um styrki fyrir nær allt sitt fólk með aðeins einni umsókn.  Gert er ráð fyrir að Áttin opni formlega um mánaðamótin okt/nóv og í framhaldinu verður farið í fundaherferð og fjölmiðlakynningu.

Fundarmenn lýstu yfir ánægju sinni með tilurð Áttarinnar og því kynningarstarfi sem framundan er. Um 70 manns sóttu fundinn.

SA fundur 20 okt 15 3

Sveinn Aðalsteinsson, verkefnisstjóri Áttarinnar kynnir vefgáttina. Mynd: Starfsafl

SA fundur 20 okt 15 2

Fjölmenni var á fundinum. Mynd: Starfsafl