Er Starfsafl þinn bakhjarl?

storidja-2Símenntun starfsmanna er lykill fyrirtækja að betra starfsumhverfi, hæfara starfsfólki og getur styrkt samkeppnisstöðu þeirra.  Þar er Starfsafl sterkur bakhjarl.
 
Hlutverk Starfsafls er að styrkja einstaklinga innan Flóabandalagsins og fyrirtæki, sem þeir starfa við, í starfsmenntun. Í því felst að Starfafl endurgreiðir fyrirtækjum kostnað vegna starfsmenntunar fyrir starfsfólk sem eru í Eflingu, Hlif og VSFK samkvæmt reglum þar um.
 
Á síðasta ári námu styrkveitingar 170 milljónum króna, þar af fóru um 45 milljónir í beina styrki til fyrirtækja.
 
Starfsafl styrkir m.a:
 • Námskeiðahald
 • Innri fræðslu fyrirtækja
 • Fræðslustjóra að láni
 • Sérstök starfsmenntaverkefni sem hafa fræðslu að markmiði
 
Kynntu þér reglur starfsafls á www.starfsafl.is – við hlökkum til að heyra frá þér.