Er fræðsla í bollanum þínum ?

Við vitum að þetta er sérkennileg yfirskrift á fundi, en æi, okkur dettur ekkert annað í hug og svo er þetta bara lýsandi fyrir efni fundarins.  Höldum okkur bara við það.

Nú er komið að þriðja morgunfundinum okkar.  Síðustu tveir voru einstaklinga vel lukkaðir, umræður voru líflegar og upplýsandi fyrir gesti.  Sjá eldri frétt hér

Við sem störfum hér hjá Starfsafli getum seint undirstrikað mikilvægi þess að eiga gott samtal við forsvarsmenn fyrirtækjanna sem félagsmenn okkar starfa hjá, til að sjá hvað betur mætti fara í starfsmenntamálum þess hóps.

Sem lið í því bjóðum við þeim sem hafa með mannauðs- og fræðslumál að gera, til okkar í morgunkaffi. Þannig getum við hlustað, tekið samtalið,  lært og leitað leiða til að mæta þörfum fyrirtækjanna og starfsmanna þeirra. Þá er ekki síður ávinningur  fyrir okkar gesti að koma hingað á skrifstofu Starfsafls, kynnast sjóðnum betur, heyra hvað aðrir eru að gera í sínum mannauðs- og fræðslumálum og vonandi mynda gagnlegar tengingar.

Um er að ræða fámenna morgunfundi, hámark 6 gesti, enga dagskrá en skemmtilegar umræður ef vel tekst til.

Næsti kaffimorgun er áætlaður fimmtudaginn 23. nóvember nk. kl. 9:30 og skráning er á netfangið starfsafl@starfsafl.is – 

Vertu velkomin/n