DHL fær Fræðslustjóra að láni

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við DHL Hraðflutninga ehf. Fyrirtækið er alþjóðlegt með starfsemi í meira en 220 löndum og svæðum. Heildarfjöldi starfsmanna er 35.000 en hérlendis eru þeir um sjötíu talsins. 

Verkefnið er að fullu styrkt af Starfsafli.

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja til “Fræðslustjóra að láni”, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Ragnar Matthíasson hjá RM ráðgjöf mun stýra verkefninu og vera í hlutverki fræðslustjórans en hann hefur stýrt fjölda fræðslustjóraverkefna fyrir sjóðina og gerir það vel.

Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550

Myndin er fengin af vef DHL, sjá hér