Á þitt fyrirtæki rétt hjá Starfsafli?

Fyrirtæki á almennum markaði með starfsfólk í Eflingu, VSFK og Verkalýðsfélaginu Hlíf getur sótt um styrki vegna náms og fræðslu starfsfólks.

Réttur fyrirtækis til að sækja um styrk myndast sjálfkrafa um leið og launatengd gjöld starfsmanns eru greidd.

  • Allt starfstengt nám er styrkt, til dæmis íslenska, meirapróf, vinnuvélanám, öryggis- og gæðastjórnunarnámskeið, stjórnun, liðsheildar og samskiptanámskeið.Styrkt er nám einstakra starfsmanna og hópa.
  • Hámark styrkfjárhæðar er 3 milljónir króna á ári.
  • Allar umsóknir eru afgreiddar innan 5 virkra daga, ef öll gögn fylgja.
  • Athugið að reikningur verður að vera á kennitölu fyrirtækis.
  • Reikningur getur verið allt að 12 mánaða.
  • Ekki hika við að hafa samband, við viljum svo sannarlega heyra í þér og aðstoða þig við þin fræðslumál.

Myndin er fengin hér