90% styrkhlutfall framlengt út árið

Stjórn Starfsafls hefur samþykkt framlengingu á 90% endurgreiðslu til 31. desember 2021

Hækkun styrkfjárhæðar á  við um styrki til einstaklinga sem og fyrirtækja og uppfylla eftirfarandi skilyrði, sjá hér

Vegna einstaklinga:

Vegna styrkja til einstaklinga gilda þær reglur sem fyrir eru og taka til áuninna réttinda en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%. Sjá reglur hér 

Vegna fyrirtækja:

Vegna styrkja til fyrirtækja gilda þær reglur sem fyrir eru en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%. Sjá reglur hér

Athugið að sem fyrr þarf að skila inn lýsingu námskeiðs, greiddum reikningi og lista yfir þátttakendur þar sem fram koma nöfn, kennitölur og stéttafélagsaðild. 

Ekki hika við að senda okkur línu ef frekari upplýsinga er þörf.

* Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar, VSFK eða Hlífar, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna

Myndin með fréttinni er fengin hér