90% styrkhlutfall framlengt til 1. maí 2022

Stjórn Starfsafls hefur samþykkt framlengingu á 90% endurgreiðslu til 1.maí 2022

Hækkun styrkfjárhæðar á við um styrki til einstaklinga sem og fyrirtækja.

Vegna fyrirtækja:

Vegna styrkja til fyrirtækja gilda þær reglur sem fyrir eru en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%. 

Athugið að sem fyrr þarf að skila inn lýsingu námskeiðs, greiddum reikningi og lista yfir þátttakendur þar sem fram koma nöfn, kennitölur og stéttafélagsaðild.

Vegna einstaklinga:

Vegna styrkja til einstaklinga gilda þær reglur sem fyrir eru og taka til áuninna réttinda en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%. 

Ekki hika við að senda okkur línu ef frekari upplýsinga er þörf.

* Öll fyrirtæki sem greiða iðgjöld af starfsfólki til Eflingar, VSFK eða Hlífar, geta sótt um í sjóðinn. Hámark veittra styrkja á almanaksári er 3 milljónir króna

Myndin með fréttinni er fengin hér