2009 er stærsta styrkjaárið í sögu Starfsafls
Alls voru 2.175 einstaklingsstyrkir afgreiddir árið 2009 til félagsmanna Eflingar, Hlífar og VSFK. Styrkirnir hafa aldrei verið fleiri í sögu sjóðsins og 48% fleiri en árið 2008. Greiddar voru 67,7 m.kr. í einstaklingsstyrki sem er 77% hærri upphæð en 2008. Til viðbótar námu styrkir til starfsmenntanáms fyrirtækja alls 18,7 m.kr. og hafa aldrei verið hærri. Alls fengu 80 fyrirtæki og aðilar styrki til að halda starfsmenntanámskeið af ýmsu tagi árið 2009.
Stjórn og starfsmenn sjóðsins eru ánægð með þessa þróun sem sýnir að fræðslusjóðurinn er að koma að góðu gagni í erfiðu árferði fyrirtækja og almennings.
Einstaklingsstyrkir Starfsafls til félaga í Eflingu, Hlíf og VSFK árin 2002 til 2009.