Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
1912 samstæðan fær fræðslustjóra að láni
1912 samstæðan, Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins.  Samningurinn nær til um 70 starfsmanna samstæðunnar (1912 ehf, Nathan og Olsen hf, Ekran ehf) þar af eru um 50 í aðildarfélögum sjóðanna.
 
Samstæðan byggir á traustum grunni eða allt frá árinu 1912 eins og nafnið gefur til kynna. Í dag ræður samstæðan yfir mörgum af sterkustu vörumerkjum heims, sem eru einnig fremst í flokki hér á landi. Markmið samstæðunnar hefur ávallt verið að tengja framleiðendur og neytendur saman á sem hagkvæmasta hátt. Hjá 1912 starfa um 70 starfsmenn og er samstæðan með starfstöðvar í Reykjavík og á Akureyri.
 
Fræðslustjóri að láni er heiti verkefnis sem Starfsafl hefur boðið fyrirtækjum síðan í lok árs 2008.  Fræðslustjórinn er venjulega sjálfstæður mannauðsráðgjafi sem fer í boði fræðslusjóðanna inn í fyrirtæki í tiltekinn tíma og aðstoðar þau við greiningu á þörfum fyrir fræðslu, lyftir upp þeirri fræðslu sem þegar er í fyrirtækinu og bendir á leiðir til auka fræðslu í framhaldi af greiningunni.  Þessi símenntunaráætlun er síðan grunnur að fræðslustarfi viðkomandi fyrirtækis í lengri eða skemmri tíma.  Verkefnið hefur mælst vel fyrir meðal fyrirtækja og starfsmanna þeirra.
 
 
Frá undirritun samninga, fremri röð, f.v. Björn Garðarsson, verkefnastjóri SVS, Sveinn Aðalsteinsson, Starfsafli, Ari Fenger, framkvæmdastjóri 1912 ehf, Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, mannauðsráðgjafi, Inga Guðrún Birgisdóttir, mannauðsstjóri 1912 ehf. 
 
 
 

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544