Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
Verkís hf og Starfsafl í samstarf
Starfsafl og verkfræðifyrirtækið Verkís hf hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um aukna samvinnu á svið fræðslu og þarfagreininga fyrir fyrirtæki og starfsmenn þeirra.  Verkís hf hefur m.a. sérhæft sig í öryggisnámskeiðum og ráðgjöf fyrir fyrirtæki.
 
Yfirlýsingin felur í sér að Verkís hf. getur boðið fyrirtækjum, sem hafa starfsmenn í Flóabandalaginu í sínum röðum, námskeið og þarfagreiningar af ýmsu tagi með það í huga að sækja um styrk til Starfsafls til að kosta fræðsluna fyrir þá starfsmenn.  Ef fyrirtækin hafa starfsmenn innan margra stéttarfélaga þá er sótt um fyrir þann hluta starfsmanna sem er í Flóabandalaginu (Efling, Hlíf, VSFK).  Hver umsókn er metin sérstaklega af stjórn Starfsafls.  Verkís hf sér um gerð umsóknar til Starfsafls fyrir fyrirtækin.
 
Verkís hf er með stærri fyrirtækjum á sviði verk- og tæknifræðilausna.  Verkís hefur m.a. unnið að öryggisúttektum, áhættumati og námskeiðum tengdum öryggi um langt árabil og innan fyrirtækisins hefur byggst upp víðtæk reynsla á þessu sviði. Fyrirtækið getur komið á fót fyrirtækjabundnum námskeiðum fyrir starfsmenn að undangenginni þarfagreiningu.  Við í Starfsafli erum viss um að samstarfið leiði til aukins framboðs af gæðafræðslu fyrir fyrirtæki sem hafa félagsmenn Flóabandalagsins að störfum og væntum okkur mikils af samstarfinu.
 
Á myndinni hér fyrir neðan handsala Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Starfsafls, og Unnur Jónsdóttir ráðgjafi hjá Verkís hf, samkomulagið í höfuðstöðvum Verkís, Ármúla 4, Reykjavík, núna í morgun.
 
 
 
 
 

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544