


Næsta úthlutun einstaklingsstyrkja Starfsafls er 1. júní 2012. Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 21. maí nk.
Individual grants for vocational training are to be paid out 1 June 2012. Turn in your application on 21_May 2012
at the latest.
1. Almennir starfsmenntastyrkir til starfsmenntanáms. Styrkur fyrir 75% námskeiðsgjalda en að hámarki 60.000 kr á ári.
2. Styrkir til lífsleiknináms (listmálun, saga o.fl.). Styrkur fyrir 50% námskeiðsgjalda en að hámarki 18.000 kr á ári.
3. Stærri styrkir til starfs-menntanáms, 180.000 kr ef viðkomandi hefur greitt í a.m.k. 3 ár til stéttarfélagsins og ekki nýtt sér fræðslustyrki á þeim tíma. Sérstakir styrkir eru einnig til meiraprófsnáms, 100.000 kr alls. Aldrei er greitt meira en 75% námskostnaðar.

Vefsíða um EU-verkefni Starfsafls um náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum
Starfsafl er til húsa að Sætúni 1, nálægt Hlemmi
Starfsafl is located in Sætún 1, close to Hlemmur Bus Station
____________
Starfsafl er verkefnisstjóri í ESB verkefninu T-Planner (Training Planner) for SMEs eða Fræðslustjóri fyrir smáfyrirtæki. Fyrsti fundur verkefnisins var haldinn nú í lok október og á dagskránni voru heimsóknir í fyrirtæki sem hafa fengið fræðslustjóra að láni fyrir fulltingi Starfsafls. Fyrirtækin sem voru heimsótt voru Reykjavik Excursions/Kynnisferðir ehf og Hreint ehf.
Starfsafl undirritaði í dag samning um styrk frá ESB í Leonardo menntaáætluninni vegna útflutnings á verkefninu "Fræðslustjóri að láni". Verkefnið er til tveggja ára og snýst um að flytja út hugmyndafræði "Fræðslustjóra að láni" til Austurríkis og Spánar. Styrkurinn nemur um 194.000 evrum (31,2 mkr) og þar af eru 53.500 evrur (ca 8,6 mkr) eyrnamerktar Starfsafli, sem er verkefnisstjóri.
Starfsafl undirritaði nýlega samstarfssamning við Hreint ehf. um styrki vegna eigin fræðslu fyrirtækisins.
Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks (SVS) gengu nýlega frá samningi um flutning réttinda félagsmanna milli fræðslusjóðanna. Reglurnar eru einfaldari og er ætlað að tryggja sanngjarnan flutning réttinda.
Starfsafl hlaut nýverið styrk frá mannaskiptaáætlun Leonardo menntaáætlunar ESB. Styrkurinn verður notaður til að senda 10 einstaklinga, Eflingarfélaga, frá 4 fyrirtækjum þ.e. Eflingu stéttarfélagi (sem sendir atvinnuleitendur), ISAVIA, Kjörís og Skeljungi, til vinnustaða á Norðurlöndunum í vikuþjálfun. Styrkurinn er að upphæð 2,6 m.kr. og er notaður til að kosta ferðir og uppihald starfsmanna eða atvinnuleitenda. Ferðir sem þessar hafa áður verið styrktar af Leonardo áætluninni og hafa tekist afskaplega vel og skilað miklum árangri.
OLÍS, Olíuverzlun Íslands, gerði nýverið samning við Starfsafl og fleiri starfsmenntasjóði í verkefninu „Fræðslustjóri að láni“. Samningurinn nær til tæplega 500 starfsmanna OLÍS þar af eru um 150 starfsmenn í Eflingu og VSFK.
Starfsafl og Landsmennt fögnuðu 10 ára afmæli í gær með stuttri og velsóttri afmælisráðstefnu á Hótel Sögu. Ráðstefnan tókst vel og var gerður góður rómur að erindum framsögumanna. Um eitt hundrað gestir sóttu ráðstefnuna.
Athugið!
Greiða þarf til stéttarfélags í a.m.k. 6 mánuði áður en nám hefst, til að fá fræðslustyrk.
Munið að skila frumriti kvittunar skóla- og namskeiðsgjalda með umsókn. EF þú ert á atvinnuleysisbótum þá skilar þú inn síðasta launaseðli frá Vinnumálastofnun.
Ef greitt er í heimabanka þarf frumrit greiðsluseðils og útskrift úr heimabanka.

Check this please!
You have to pay for at least 6 months to your union club before you start your studies in order to get a vocational grant.
You must turn in the orginal receipt for tution fee with your application. IF you receive unemployment benefits you turn in your last benefit slip from Vinnumálastofnun.
If you use an internet bank you must turn in the original invoice (greiðsluseðill) and a printed transaction from your internet bank.