Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is

Æskilegast er að sækja um styrk til Starfsafls áður en verkefnið fer af stað, þó er það ekki skilyrði. Stjórn Starfsafls tekur ákvörðun um styrkupphæð til viðkomandi verkefnis út frá þeim upplýsingum sem koma fram í umsókninni. Styrkurinn er greiddur eftir að verkefnið hefur farið fram og þá þarf að fylgja þátttakendalisti staðfestur af kennsluaðila ásamt kennitölum þátttakenda og námskeiðslýsingu ef hún hefur ekki þegar verið send.

Fáðu almenna kynningu á þjónustu Starfsafls við fyrirtæki.
Sjáðu umsagnir fyrirtækja um þjónustu Starfsafls.
Sjáðu dæmi um námskeið sem Starfsafl styrkir inni í fyrirtækjum.

Skoðaðu bækling Starfsafls fyrir fyrirtæki (pdf).

Nú hefur Starfsafl gert fyrirtækjum og fræðsluaðilum auðveldar fyrir að sækja um styrk til námskeiðahalds.  Hér á vefnum má nú finna eyðublað sem fyrirtæki geta hlaðið niður, fyllt út og sent rafrænt ásamt fylgiskjölum til Starfsafls.

Mælst er til að fræðsluaðilar sjái um útfyllingu umsóknar, í umboði fyrirtækis, einkum ef um stærri námskeið er að ræða.  Fyrirtækjum er þó að sjálfsögðu heimilt að sækja um styrki til Starfsafls sjálf, einkum ef um smærri námskeið er að ræða.

Þess er vænst að þessi nýbreytni auðveldi fyrirtækjum að sækja sér styrk til Starfsafls.  Forstöðumaður veitir allar nánari upplýsingar og aðstoð ef á þarf að halda í síma 510 7544, 510 7543 eða gsm 698 9644, eða í fyrirspurnum með tölvupósti, starfsafl@starfsafl.is.  Útfylltar umsóknir sendist á starfsafl@starfsafl.is 

Smelltu hér til að nálgast umsóknareyðublaðið og veldu "Save" til að vista skjalið á þinni tölvu (Excel skjal, einnig er hægt að hægrismella með músinni á tengilinn og velja Save Target As..)

  • Ef um þróunarstyrk er að ræða er hann greiddur í þremur áföngum; við upphaf verkefnisins, miðbik og í lokin.
  • Starfsafl greiðir aðeins fyrir starfsmenn sem eru félagar í stéttarfélögum Flóabandalagsins; Eflingu-stéttarfélagi, Verkalýðsfélaginu Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis. Ef hópur starfsmanna  í fyrirtækinu fer á námskeið þá greiðir Starfsafl hlutfallslega miðað við fjölda Flóa-félaga.
  • Fyrirtæki sem ekki eru í Samtökum atvinnulífsins en hafa starfsmenn sem eiga aðild að Starfsafli geta sótt um styrk vegna starfstengdra námskeiða fyrir þá starfsmenn. Styrkur nemur þó aldrei meira en 75% af þeirri greiðslu sem fyrirtæki innan SA fengi fyrir sambærilegt námskeið.
  • Ef fyrirtæki sækja um styrk til íslenskukennslu fyrir útlendinga þá gildir sú vinnuregla, að fyrirtækjum eða fræðsluaðilum er bent á að sækja um styrk til íslenskukennslu sem menntamálaráðuneytið veitir.  Umsóknarfresti má sjá á vef menntamálaráðuneytisins. Ráðuneytið auglýsir venjulega styrki í byrjun janúar og ágúst/september.  Starfsafl styrkir u.þ.b. 170 kr per nemendastund hafi fyrirtæki fengið styrk frá ráðuneytinu, þó aldrei meira en 75% af því sem á vantar eftir styrk ráðuneytis.  Fyrirtæki sem eru utan SA fá 75% af þessari fyrirgreiðslu.  Það sem upp á kann að vanta greiða fyrirtæki, stéttarfélög eða starfsmenn.  Einungis er greitt fyrir starfsmenn í stéttarfélögum Flóabandalagsins sbr. vinnureglu hér á undan.
  • Fyrirtæki geta sótt um styrk til Starfsafls í samvinnu við önnur fyrirtæki, fræðsluaðila og/eða stéttarfélög sem aðild eiga að Starfsafli.
  • Stjórn Starfsafls fundar að jafnaði tvisvar í mánuði. Forstöðumaður vinnur umsóknir og leggur fyrir stjórn.
  • Starfsafl hefur tekið þátt í margvíslegum verkefnum í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og hefur reynsla og þekking safnast hjá aðilum sjóðsins. Eitt af markmiðum Starfsafls er að fyrirtæki geti leitað upplýsinga hjá sjóðnum varðandi símenntun/starfsmenntun í öllum starfsgreinum er tengjast Starfsafli.


 

Helstu starfsgreinar þeirra sem aðild eiga að Starfsafli

Smelltu hér til að sjá lista yfir starfsgreinar



Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544