Fræðslustjóri að láni
Verkefnið „Fræðslustjóri að láni“ byggist á að lána út mannauðsráðgjafa, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun, til fyrirtækja. Ráðgjafinn fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, dregur fram það sem vel er gert, gerir eða dýpkar greiningu á þörfum fyrirtækisins og samhæfir við önnur námskeið eða viðurkenndar fræðsluleiðir innan óformlega fræðslukerfisins. Má þar nefna námsleiðir samkvæmt námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins – þar sem það á við.
Fyrirtæki þurfa að geta brugðist við breytingum og þróun og verið sveigjanleg bæði í starfsmannahaldi og verkefnum til að vera ávallt skrefi á undan viðskiptavinum sínum og helstu samkeppnisaðilum. Til að fylgja þessari þróun eftir og til að ná góðum árangri þurfa fyrirtæki að laða fram það besta í öllum starfsmönnum á hverjum degi.
Fræðslustjóri að láni er árangursmiðað verkfæri sem miðar að því að samhæfa og nýta lausnir sem þegar eru til, ýmist innan fyrirtækjanna og/eða hjá símenntunarstöðvum eða öðrum fræðsluaðilum. Það er mikið til af góðum náms- og þjálfunarúrræðum á vinnumarkaðnum en mörg þeirra eru lítið notuð meðal smærri fyrirtækja, hugsanlega vegna skorts á kynningu. Mörg fyrirtæki, einkum þau stærri, eru með fjölbreyttar þjálfunaráætlanir fyrir sitt starfsfólk. Vandinn er fá yfirsýn yfir fræðsluna og koma henni í farveg sem gagnast bæði fyrirtækinu og starfsmönnum. Þar er þörf fyrir fræðslustjóra í afmörkuð, skilgreind verkefni.
Verkefnin "Fræðslustjóri að láni" og forveri þess "Nýliðaþjálfun", haf náð til um 30 fyrirtækja með um 3.000 starfsmanna alls. Viðtökur fyrirtækjanna hafa verið mjög jákvæðar. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Starfsafls í síma 510 7543 og 510 7544. Samstarfsaðilar Starfsafls í þessu verkefni eru Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks.
Starfsmenntaráð hefur styrkt verkefnið.
Hvernig fæ ég fræðslustjóra að láni?
1. Þú hefur samband við okkur í síma 510 7543/44 eða með tölvupósti starfsafl@starfsafl.is Skilyrði er að fyrirtækið hafi starfsmenn innan Flóabandalagsins og/eða annara félaga innan Starfsgreinasambandsins og/eða VR.
2. Við komum á fund til þín/ykkar og ræðum verkefnið.
3. Ef öllum líst vel á verkefnið, þá gerum við drög að samningi sem þið farið yfir. Fjöldi tíma sem ráðgjafinn vinnur fyrir fyrirtækið er tengdur fjölda starfsmanna sem eiga aðild að starfsmenntasjóðunum. Einungis er leitað til sjálfstæðra ráðgjafa sem hafa mikla reynslu af verkefnum í fyrirtækjum.
4. Samningurinn fer fyrir stjórn Starfsafls (og, eftir atvikum, stjórnir annarra starfsmenntasjóða) á næsta stjórnarfundi (auglýstur á forsíðu www.starfsafl.is ) til afgreiðslu.
5. Ef afgreiðslan er jákvæð þá skrifum við undir og verkefnið hefst strax við undirskrift. Verkefnið er mótað í fullu samráði við fyrirtækið.
6. Komið er á fót rýnihópum við fyrirtækið og ráðgjafinn leiðir þá vinnu, vinnur þarfagreiningu og gerir símenntunaráætlun. Áætlunin er eign fyrirtækisins og viðkomandi sjóðs, sem gætir fyllsta trúnaðar.
7. Verkefnið kynnt á lokafundi að viðstöddum fulltrúum viðkomandi starfsmenntasjóða, sem eiga aðild að verkefninu.
8. Símenntunaráætlun sett í framkvæmd með stuðningi starfsmenntasjóða.
Hafðu samband strax í dag!
Annað efni
Sérkynning á Fræðslustjóra að láni (pdf)
Umsögn Huldu Bjarkar Halldórsdóttur á mannauðssviði N1 um verkefnið (Mbl. 8. okt. 2009) (pdf)
Umsagnir fyrirtækja sem hafa tekið þátt í ráðgjafaverkefnum Starsfafls.